Í dag vaknaði ég og þegar ég var á leiðinni útí bíl þá var snjókoma… ég var ekki alveg sáttur þar sem sumarið á að vera að koma, og allan dag var bara snjór. En þar sem þetta er alveg fáránlegt land er þetta alveg normal svo sem, snjókoma aðra mínútuna og sól hina, en samt í kvöld var rosarlega rólegt veður og þægilegt.
Helginn var rosarlega góð þar sem Andriii var á landinu yfir helgina, og hann átti hvorki meira né minna en afmæli 19. Maí, og óskaði ég honum alveg marg oft til hamingju með afmælið, enda var þetta eitt besta djamm sem ég hef farið á. Og ég verð bara segja að maturinn sem ég fékk hjá honum á Ruby Thuseday var alveg RUGL góður, þar sem ég fékk mér ,, Bacon “Jack” burger” sem var þrusugóður, og svo eftir það fór um við í keilu sem mikið var hlegið og gaman. En og aftur hamingju með Afmælið Andriii.
Celican er eitthvað að klikka, fór með hana í 3 skiftið uppí toyota, ég held að þeir séu að bíða eftir því að stangalegan fari hjá okkur, þar sem vélinn er alveg 100% gölluð, þar sem hún klárar olíuna á 4000-5000 KM sem er óeðlilegt, þar sem þetta er viðurkendur galli hjá toyota í öllum heiminum, búið er að skifta um 80% bíla með þessar vélar (1zz-fe) sem er toyota celica og toyota mr2, toyota er alveg hundleiðinlegt umboð til að röfla í, ég fór í dag einmitt og þá var mér sagt í 3 skiftið að koma eftir 1000 km. Og hljóðið í vélinn er búið að magnast svo um munar, ef þeir vilja ekki standa undir umboði og gera eins og á að gera, það er að segja að borga vélina, þá verður bíllinn sennilega númers laus, þar til við fáum nýja vél. Þetta er alveg dæmigert, en vonandi fer þetta allt vel.
Búið í bili. Kveðja, Elmovitz / Elmar

